Velkomin(n) á Köttarar.net
|
Tap gegn Leikni í virkilega döprum leik
Geiri Ágætis veður var í Laugardalnum í kvöld þegar leiknismenn kom í heimsókn. Lið Þróttar var þannig skipað að Halli var í markinu, með þá Eystein, Ingvar, Dusan og Birki fyrir framan sig. Á miðjunni voru Hallur og Mummi, Höddi og Oddur voru á köntunum og Hjörvar var fremstur með Dóra rétt fyrir aftan sig.
Leikurinn byrjaði ágætlega, og Mummi komst einn í gegn eftir um 10 mínútna leik, eftir gott samspil í gegn um vörn Leiknismanna. Mummi náði skotinu sem endaði rétt framhjá. Ekki gerðist mikið á vellinum eftir þetta, nokkur hálffæri, en ekkert sem vert er að tala um. Mikil barátta á miðjunni, og lítið af færum. Liðin fóru því jöfn inn í búningsklefa í hálfleiknum með stöðuna 0-0. Eftir um það bil 15 mínútna leik í seinni hálfleiknum fengu Leiknismenn hornspyrnu, boltinn barst inn í teig á Helga Pétur Jóhannsson sem skallaði boltann í markið. Eftir markið reyndu Þróttarar aðeins að sækja, en Leiknismenn voru sterkir og pressuðu hátt upp á völlinn. Þróttarar fengu engan tíma á boltanum, og því var fátt um fína drætti í leik líðsins. Um það bil fjórum mínútum eftir fyrra markið fékk Helgi Pétur Jóhannsson boltann aftur fyrir utan vítateig Þróttara, og gott skot hans endaði efst í markhorninu. Staðan því orðin 2-0 fyrir Leikni eftir um það bil 63 mínútur. Við þetta mark virtust margir Þróttarar gefast upp og hætta. Menn fóru að reyna að gera of mikið sjálfir, eða að bomba boltanum fram á framherjana sem eru ekki háir í loftinu, og máttu síns lítils gegn sterkum miðvörðum Leiknismanna. Andrés kom inn á þegar um 15 mínútur voru eftir af leiknum, og hann náði aðeins að ógna með hraða sínum. Hallur átti fínan leik á miðjunni, og var valinn maður leiksins úr röðum Þróttara. Engir aðrir sköruðu fram úr í dag, og hugmyndaleysi virtist einkenna leik liðsins. Menn voru annað hvort að negla fram eða að reyna að sóla upp völlinn sjálfir. Virkilega slappur leikur hjá Þróttaraliðinu í dag, og Leiknismenn voru bara betri aðilinn. Allavega í seinni hálfleiknum. Næsti leikur er gegn Þór á Akureyri á föstudaginn. Við verðum að bæta okkar leik ef við ætlum að reyna að sækja stig þangað. Þora að halda boltanum, og spila honum á milli manna. LIFI ÞRÓTTUR!!!! |
AthugasemdirÞað eru engar athugasemdir. |
Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon