Velkomin(n) á Köttarar.net

Notendur
Hæ, Gestur
MP3 Spilari
MP3 Spilari.
Húrra fyrir Ása Haralds!
Dagsetning 03.06.2010 - 22:55  Höfundur JonOlafs  Smellir 387
Ásmundur Haraldsson, fyrrum Þróttari og nú þjálfari Gróttu sýndi drenglyndi mikið í kvöld í kjölfar fyrsta mark leiksins. Stormsentir Gróttumanna skoraði þá glæsilegt mark eftir mikinn einleik gegn ráðvilltum varnarmönnum Þróttar sem áttu alls ekki von á þessum tilþrifum drengsins. Skömmu áður lá piltur í grasinu og Þróttur var með boltann. Dómarinn stöðvaði þá leikinn og þegar hann lét knöttinn falla í jörð í dómarakasti tók fyrrnefndur miðherji sig til og sýndi líka þessi gríðarlegu tilþrif. Undrunarsvipur Þróttara, dómarans og ekki síst samherja hans í Gróttu höfðu engin áhrif og eftir gott skot hans var staðan 0-1.  Stuðningsmenn Gróttu fögnuðu markinu ekki og það gerðu félagar sökudólgsins inni á vellinum ekki heldur. Eysteinn Pétur trompaðist og uppskar gult spjald. Algjör farsi á vellinum; segi og skrifa.  Og þá gerðist það. Eitt fallegasta atvik íslenskrar knattspyrnusögu!  Ásmundur Haraldsson kom hlaupandi að hliðarlínunni og gaf Gróttumönnum fyrirmæli. Þegar Þróttur tók miðjuna færðu Seltirningar sig frá og buðu Halldóri Hilmissyni að hlaupa upp miðjan völlinn og meira að segja markvörðurinn lét sig hverfa þannig að Dóri gat rennt boltanum í netið án þess að nokkur reyndi að stöðva hann, 1-1 og þar með lauk þessu gamanleikriti.  Áhorfendur felldu tár og klöppuðu Gróttumönnum og þjálfara þeirr lof í lófa fyrir drenglyndið mikla. Skömmu síðar var flautað til leikhlés.  Þróttarar voru mun sterkari í fyrri hálfleiknum en gekk illa að komast í dauðafæri. Hinsvegar áttu Gróttumenn þrjú dauðafæri í sömu sókninni þegar leikurinn var nýhafinn en Haraldur markvörður varði allt sem á markið kom. Í síðari hálfleik komu heimamenn tvíefldiir til leiks og þegar um hálftími var eftir skoraði Andrés Vilhjálmsson frábært mark með skoti fyrir utan vítateig sem hafnaði í þverslánni og þaðan skaust boltinn inn fyrir marklínuna, 2-1.  Tíu mínútum fyrir leikslok átti svo varamaðurinn, Oddur Björnsson, afbragðsgóða fyrirgjöf og Halldór Hilmisson renndi sér í knöttinn sem endaði í markinu, 3-1 og þetta urðu lokatölur leiksins. Þróttur var sterkari aðilinn í skemmtilegum leik en Gróttumenn eru með lipra menn inn á milli og áttu eitt frábært skot sem stefndi í mark Þróttar en enn og aftur sýndi Haraldur mátt sinn og megin og varði skotið alveg út við stöng.  Hvalreki á okkar fjörur. Ingvar Ólason var í vörninni í stað Helga P sem þurfti til útlanda og átti Ingvar frábæran leik og kom með mikla yfirvegun í liðið. 
Maður leiksins: Ásmundur Haraldsson, þjálfari Gróttu.

Athugasemdir

Bloomer þann 04.06.2010 - 11:54
Það er gaman að því að okkar menn eru að spila skemmtilegan bolta, virkar stundum dálítið rólegt fram á við en það krefst líka þolinmæði að brjóta niður fjölmenna varnarlínu.
Mjög drengileg framkoma hjá Gróttumönnum og eiga þeir og formaður Reitaboltasambands Íslands, heiður skilinn fyrir viðbrögðin við þessu skrýtna atviki. Maður sá að öllum var brugðið á vellinum, leikmenn Gróttu og stuðningsmenn þar með taldir.
Hörkuleikur á mánudaginn á heimavelli gegn Leikni sem virðast í fantaformi, verðum að fjölmenna á þann leik.
Solla þann 04.06.2010 - 13:19
Já, strákarnir stóðu sig vel. Og nú er svo sannarlega komið að okkur stuðningsmönnum að "bretta upp ermar og skálmar" og slípa til raddböndin. Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi!!!!! En hvernig er það Bloomer, er ekki leikur hjá ykkur stelpunum kl.18 Í DAG??????? Smile LIFI ÞRÓTTUR!!!!!
 

Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon

Forsíða | Um Vefinn | Veftré | Hafa Samband
Orkað af MemHT Portal