Velkomin(n) á Köttarar.net

Notendur
Hæ, Gestur
MP3 Spilari
MP3 Spilari.
Slæmt tap gegn Fjölni
Dagsetning 29.05.2010 - 12:08  Höfundur JonOlafs  Smellir 323
Þetta verður ekki langur pistill, enda mun leiðinlegra að skrifa um tapleiki en þá sem vinnast. Þróttur fór sneypuför í Grafarvoginn og laut í lægra haldi gegn ungu og frísku Fjölnisliði, 0-3.  Það er hægt að draga þetta saman í nokkrar setningar; vörnin vissi ekki hvort hún var að koma eða fara og sóknarmenn nýttu ekki dauðafæri, því fór sem fór.  Fjölnisliðið var mun frískara og ákafara en Þróttarliðið. Skásti maður okkar var Hallur sem barðist að vanda eins og grenjandi ljón.  Næsti leikur er gegn Gróttu í bikarnum og nú er spurning hvort Ingvar Ólason verði settur í miðvörðinn eftir slaka frammistöðu turnanna tveggja í gærkvöldi.  Þessi leikur sýndi einfaldlega og sannaði að það er ekkert gefið í 1.deildinni enda sýnir staðan það stigataflan það. Við treystum á að okkar menn rísi upp í næstu leikjum og sýni betri takta en í Grafarvoginum í gær.

Athugasemdir

Geiri þann 29.05.2010 - 15:25
Við hljótum að sjá breytingar á varnarlínunni í næsta leik. Öll varnarlínan átti mjög dapran dag. Auðvitað geta allir átt dapran dag, en við höfum verið að fá á okkur of mörg mörk í sumar, þannig að eitthvað þarf að gera. Birkir Pálsson sat uppi í stúku í gær, og komst ekki í hópinn. Ég vill sjá Palla prófa hann í bakvörðinn, og henda Ingvari Óla í miðvörðinn. Það er fyrsta skref að laga varnarleikinn. Drési var duglegur í gær, og skapaði sér nokkur góð færi, en var ekki að nýta þau. Hallur var okkar langbesti maður í gær, og virtist vera sá eini sem var virkilega að reyna að gera eitthvað þarna inni á vellinum.
 

Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon

Forsíða | Um Vefinn | Veftré | Hafa Samband
Orkað af MemHT Portal