Velkomin(n) á Köttarar.net
|
Leikur gegn Fjölni í kvöld
Geiri Þá er komið að næsta leik í deildinni. Þetta er 4. umferðin sem Þróttarar spila, og eftir tap í fyrstu umferðinn gegn HK hafa strákarnir náð að landa tveimur flottum sigrum, gegn HK og Fjarðarbyggð. Leikurinn í kvöld er gegn Fjölni, í Grafarvoginum. Leikurinn hefst klukkan 20:00. Leikir þessara liða í gegnum árin hafa oftast verið mögnuð skemmtun, og nóg af spjöldum, mörkum og umdeildum atvikum. Við hvetjum því alla til að mæta í Grafarvoginn í kvöld og hvetja strákana gegn Fjölnismönnum.
Liklegt byrjunarlið Þróttar: ----------------Halli Eysteinn-Dusan-Helgi-Ingvi --------Hallur----Mummi Höddi----------------------Guffi --------------Dóri Drési Það er annars helst að frétta af liðinu að allir eru að verða heilir, og til í slaginn. Elli Jack er að verða góður af bakmeiðslunum sem hann hlaut gegn HK. Oddur Börns er orðinn góður af sínum meiðslum, Ingvar er heill, og þá er stórvinur okkar Birkir Pálsson farinn að sparka á fullu eftir erfið meiðsli. Tökum nú á þessu í kvöld, og slátrum þessum Fjölnismönnum. LIFI ÞRÓTTUR!!! |
Athugasemdir |
Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon
Verðum við Þróttarar fyrstir til að leggja Fjölnir í 1. deildinni í ár? Ég hugsa það.