Velkomin(n) á Köttarar.net
|
Tveir leikmenn halda til útlanda
Geiri Tveir leikmenn Þróttar hafa haldið á önnur mið, og ætla að reyna fyrir sér í útlöndum, það eru þeir Doddi og Maggi Lú sem hafa ákveðið að færa sig um set.
Doddi fer til Kristjáns Guðmundssonar, fyrrverandi þjálfara keflavíkur sem þjálfar lið HB í Færeyjum. Doddi lenti í meiðslum í fyrra, en hann spilaði 10 leiki í úrvalsdeildinni fyrir okkur á síðasta tímabili. Doddi kom til okkar frá Val fyrir tímabilið 2006, og hefur leikið 52 leiki fyrir okkur í deild og bikar síðan þá, og skorað 3 mörk. Maggi Lú samdi við Hödd í Noregi. Hann fór þangað á dögunum og náði að næla sér í samning. Maggi kom frá KR árið 2005 og hefur spilað með Þrótti síðan þá, fyrir utan stutta ferð í vesturbæinn í byrjun síðasta tímabils. Frá árinu 2005 hefur Maggi spilað 85 leiki fyrir okkur í deild og bikar, og skorað 13 mörk. Við óskum þeim félögum að sjálfsögðu góðs gengis hjá frændum okkar í Noregi og Færeyjum, og vonum að þeir komi aftur í Dalinn þegar þeir snúa aftur heim. LIFI ÞRÓTTUR!!! |
Athugasemdirsilberto þann 16.02.2010 - 21:18 Gott að sjá Geiri að þú hafir uppgötvað veraldarvefinn á ný! |
Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon