Velkomin(n) á Köttarar.net

Notendur
Hæ, Gestur
MP3 Spilari
MP3 Spilari.
Ingvar Óla orđinn röndóttur á ný
Dagsetning 06.02.2010 - 13:55  Höfundur JonOlafs  Smellir 447
Hinn atorkusami málari og knattspyrnumaður, Ingvar Ólason, hefur snúið til baka í herbúðir síns uppeldisfélags, Þróttar og skrifaði í morgun undir árssamning við félagið. Þetta eru ákaflega góð tíðindi. Ingvar var einn besti maður í sterku liði Fram síðastliðið sumar en hann hefur leikið í Safamýrardressinu síðustu tíu árin. Málarinn er hokinn af reynslu og auk þess að leika með liðinu verður hann aðstoðarþjálfari Páls Einarssonar.  Ingvar getur leyst flestar stöður á vellinum og gott ef hann hefur ekki leikið þær allar á ferlinum, meira að segja í markinu. Vertu velkominn heim Ingvar!

Athugasemdir

Solla þann 07.02.2010 - 00:58
"GARGANDI SNILLD"! Velkominn Ingvar.
 

Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon

Forsíða | Um Vefinn | Veftré | Hafa Samband
Orkað af MemHT Portal