Velkomin(n) á Köttarar.net

Notendur
Hæ, Gestur
MP3 Spilari
MP3 Spilari.
Dramatík og léleg dómgćsla gegn Val
Dagsetning 23.01.2010 - 17:55  Höfundur Geiri  Smellir 660
Þróttarar tóku á móti Val í Egilshöllinni í dag.  Lið Þróttar var þannig skipað að Kjartan var í markinu, Birkir, Ingvi, Eysteinn og Doddi í vörninni, Hallur, Elli og Dóri á miðjunni. Maggi og Höddi Bjarna á köntunum, og Hjörvar frammi.  Haukur Páll var ekki í liði vals þar sem hann er ekki kominn með leikheimild.

Leikurinn byrjaði fjörlega, og á 6. mínútu fengu Þróttarar aukaspyrnu úti á kanti, boltinn barst inn í teig, og eftir smá klafs í teignum fékk Eysteinn boltann og lagði hann snyrtilega í markið.  Leikurinn hafði verið jafn á upphafsmínútunum, en Þróttarar nýttu fyrsta alvöru færið sem þeir fengu.



Það var svo 10 mínútum síðar sem að Dóri Hilmis fékk stungusendingu inn fyrir vörnina frá Birki.  Dóri var kominn einn gegn markmanninum, lék snyrtilega á hann, og lék svo á varnarmann sem var kominn til baka.  Eftirleikurinn var því auðveldur, og hann lagði boltann snyrtilega í markið.  2-0 fyrir Þrótti, og draumabyrjun í grafarvoginum.

Enn liðu 10 mínútur, og á 26. mínútu fékk Ingvi boltann úti á hægri kantinum, sendi hann inn í teiginn, og þar var hjörvar mættur og skilaði honum í netið.  Á 30. mínútu fékk Hallur að líta sitt annað gula spjald fyrir sitt anað brot, og þar af leiðandi rautt.  Glórulaus ákvörðun hjá dómaranum að gefa tvö gul spjöld fyrir tvö brot.  Hvorugt brotið var gróft, og þetta skemmdi leikinn fyrir okkur að mörgu leiti.  Þegar þarna var komið við sögu höfðum við verið miklu betri í leiknum, og Valsmenn hreint út sagt slakir fyrsta hálftímann.  Mínútu eftir brottrekstur Halla ná þeir síðan að minnaka muninn í 3-1, og þannig var staðan í hálfleik.

Eftir 5 mínútna leik í seinni hálfleik vildu Þróttarar fá aukaspyrnu á miðjum vellinum, þá virtist vera brotið á Dodda sem lá eftir, en dómarinn sá ekki ástæðu til að flauta.  Með þrjá menn í vörn áttu Valsarar ekki í vandræðum með að spila sig í gegn og skora.  Skotið var reyndar slakt, en það lak inn engu að síður.  3-2 fyrir Þrótt.  Á 53. Mínútu fengu Valsarar aukaspyrnu á vítateigslínunni.  Þróttarar voru ósáttir við dóminn, en hann stóð engu að síður.  Þeir tóku slaka aukaspyrnu sem fór beint í vegginn.  Þrótturum mistókst að hreinsa boltann frá og eftir smá klafs barst hann út til leikmanns Vals sem skaut í varnarmann og framhjá Andra sem hafði komið inn í markið í hálfleik.

Á 65. mín átti Maggi frábæran sprett þar sem hann lék á 3 Valsara, var kominn upp að endamörkum og lagði boltann snyrtilega út í teiginn á Drésa sem var einn fyrir opnu marki.  Drési hitti boltann illa, og hann rúllaði framhjá.  Þarna hefðum við átt að komast yfir í leiknum, en heppnin var ekki með okkur.

3 mínútum síðar er leikmaður Vals með boltann inni í teignum gegn Ingva.  Ingvi hendir sér í slæma tæklingu, og dómarinn dæmdi réttilega víti.  Viktor Unnar Illugason steig á punktinn, og hann sendi Andra í vitlaust horn og kom Valsmönnum yfir 4-3.

Það var svo á loka mínútu leiksins sem Elli komst í gegn um vörn Vals.  Hann ætlaði að vippa boltanum yfir Harald Björnsson sem stóð í marki Vals, en Haraldur sópaði undan honum fótunum, og aftur dæmdi dómarinn réttilega víti.  Maggi Lú steig á punktinn fyrir Þrótt og negldi boltanum af öryggi í mitt markið.  Þróttarar voru því búnir að jafna, 4-4, á lokamínútu leiksins.  Í uppbótartíma sluppum við síðan í gegn, en sendingin fyrir markið var slök, og beint í fæturna á varnarmanni.   Eftir það flautaði dómari leiksins til leiksloka, og því eru fyrstu úrslitin okkar í þessu móti Jafntefli gegn liði Vals.

Leikurinn var mjög vel spilaður af okkar hálfu á meðan við vorum með 11 menn inni á vellinum, en leikurinn riðlaðist töluvert þegar Hallur var rekinn út af.  Engu að síður vorum við alls ekki slakir með 10 menn gegn þeirra 11. Birkir átti fínan leik í vörninni, og Eysteinn og Doddi voru Solid.  Maggi Lú og Dóri áttu góða spretti, og Hjörvar var mjög duglegur í framlínunni.  Mér lýst vel á liðið, og nokkuð ljóst að Palli er að gera flotta hluti með þennan hóp. 

Næsti leikur Þróttar er gegn KR í Egilshöllinni á fimmtuddag klukkan 19:10, og við hvetjum alla til að mæta og kíkja á leikinn.

LIFI ÞRÓTTUR!!!

Athugasemdir

silberto þann 23.01.2010 - 18:15
Frábær skýrsla Geiri! Komst ekki á leikinn vegna vinnu. Sé þig allaveganna á Þorrablótinu. kv. Silli
JonOlafs þann 23.01.2010 - 21:47
Vel gert að vera einum færri í klukkutíma og tapa ekki leiknum.
Solla þann 24.01.2010 - 11:33
Já, Jón. Þróttur og Leeds, lúkka vel, þessa dagana. Smile
JonOlafs þann 24.01.2010 - 12:15
dásemdin!
 

Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon

Forsíða | Um Vefinn | Veftré | Hafa Samband
Orkað af MemHT Portal