Velkomin(n) á Köttarar.net

Notendur
Hæ, Gestur
MP3 Spilari
MP3 Spilari.
Fyrsti leikur í Reykjavíkurmótinu
Dagsetning 22.01.2010 - 11:58  Höfundur Geiri  Smellir 262
Þá er komið að því að við fáum að sjá strákana sprikla í alvöru leik.  Fyrsti alvöru leikur undirbúningstímabilsins fer fram á morgun gegn Val.  Leikurinn, sem er fyrsti leikur Reykjavíkurmótsins, fer fram í Egilshöllinni á morgun, klukkan 15:00.  Þess má geta að það eru nokkrir leikmenn farnir úr liðinu síðan í fyrra, Rabbi fór í Breiðablik, Jón Ragnar í FH, og svo á gamlársdag skipti Haukur Páll yfir í Val.  Það má því gera ráð fyrir að hann leiki sinn fyrsta leik gegn Þrótti á morgun.  En við höfum líka fengið liðsstyrk síðan í sumar.  Elli Jack kom til baka úr ÍR, og hann hefur verið að spila mjög vel á miðjunni í þeim æfingaleikjum sem ég hef séð.  Hjörvar Hermannsson kom frá Reyni Sandgerði.  Hörður Bjarnason gekk til liðs við okkur frá Berserkjum, en þar áður hafði hann leikið með Víking og Breiðablik.  Sóknarmaðurinn Muamer Sadikovic er einnig genginn til liðs við okkur frá Hvöt, en hann var einn af bestu leikmönnum Hvatar í 2.deildinni í fyrra.  Síðast en ekki síst má nefna okkar gamla félaga Halldór Hilmisson, sem er kominn aftur í fallega búninginn eftir nokkur ár hjá Fylki. 

Það er því tilvalið að skella sér í Grafarvoginn og horfa á strákana spila, negla sér svo heim í sturtu og skipta um föt, og bruna í Laugardalshöllina á Þorrablót Laugardalsins, þar sem verður étinn súrmatur, horft á hanboltalandsliðið vinna Dani á risaskjá, og svo dansað og drukkið langt fram eftir nóttu. 

LIFI ÞRÓTTUR!!!

Athugasemdir

Það eru engar athugasemdir.
 

Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon

Forsíða | Um Vefinn | Veftré | Hafa Samband
Orkað af MemHT Portal