Velkomin(n) á Köttarar.net
|
Jóni Ragnari ţökkuđ samfylgdin
JonOlafs Bakvörðurinn Jón Ragnar Jónsson hefur gengið á ný til liðs við sitt uppeldisfélag, FH í Hafnarfirði. Undanfarin fjögur tímabil hefur hann leikið með Þrótti og vaxið mjög í leik sínum. Hann hefur ávallt lagt sig 100% fyrir Þrótt og þótti ekki einvörðungu sterkur á velli heldur einnig utan hans enda með eindæmum kátur og lífsglaður piltur sem leiðist ekki að hafa fjör í kringum sig. Við Köttarar þökkum honum hans framlag til Þróttar og óskum honum velfarnaðar í fimleikunum.
|
AthugasemdirGeiri þann 18.01.2010 - 18:03 Heyr heyr... Þakka Jóni kærlega fyrir samstarfið, og hans framlag til Þróttar undanfarin ár. Gangi þér sem allra best á heimaslóðunum Solla þann 20.01.2010 - 14:38 Já, svo sannarlega eftirsjá af Jóni Ragnari. Skemmtilegur strákur. Takk, Jón. Svo kemurðu bara aftur, þegar þú ferð að sakna okkar í Laugardalnum. silberto þann 20.01.2010 - 14:47 Tók virkilega miklum framförum hjá Þrótti. Ég var að vonast eftir því að hann væri með okkur í sumar. En mig grunar nú að lífið í Hafnarfirðinu verði nú ekki auðvelt. Mikil samkeppni á þeim bænum. Hver veit nema leiðir okkar og Jóns liggi saman á ný í framtíðinni. Það væri óskandi. |
Köttarar.net © 2008-2010 - Stjórnborðið
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon