Velkomin(n) á Köttarar.net

Notendur
Hæ, Gestur
MP3 Spilari
MP3 Spilari.

Hinn atorkusami málari og knattspyrnumaður, Ingvar Ólason, hefur snúið til baka í herbúðir síns uppeldisfélags, Þróttar og skrifaði í morgun undir árssamning við félagið. Þetta eru ákaflega góð tíðindi. Ingvar var einn besti maður í sterku liði Fram síðastliðið sumar en hann hefur leikið í Safamýrardressinu síðustu tíu árin. Málarinn er hokinn af reynslu og auk þess að leika með liðinu verður hann aðstoðarþjálfari Páls Einarssonar.  Ingvar getur leyst flestar stöður á vellinum og gott ef hann hefur ekki leikið þær allar á ferlinum, meira að segja í markinu. Vertu velkominn heim Ingvar!

Þriðji leikurinn í Reykjavíkurmótinu fer fram í kvöld í Egilshöllinni. Þróttur og ÍR mætast á teppinu. Þar munu kljást þeir fóstbræður Elli Jack (Þrótti) og Guffi Black (ÍR).  Síðasti leikur Þróttar var víst helber skelfing enda varð stórtap gegn KR staðreynd, 1-6.  Það verður fróðlegt að sjá hvort búið sé að stoppa í götin í vörninni. Leikurinn hefst kl. 19.15 eins og segir í fyrirsögninni. 

Þróttarar tóku á móti Val í Egilshöllinni í dag.  Lið Þróttar var þannig skipað að Kjartan var í markinu, Birkir, Ingvi, Eysteinn og Doddi í vörninni, Hallur, Elli og Dóri á miðjunni. Maggi og Höddi Bjarna á köntunum, og Hjörvar frammi.  Haukur Páll var ekki í liði vals þar sem hann er ekki kominn með leikheimild.

Leikurinn byrjaði fjörlega, og á 6. mínútu fengu Þróttarar aukaspyrnu úti á kanti, boltinn barst inn í teig, og eftir smá klafs í teignum fékk Eysteinn boltann og lagði hann snyrtilega í markið.  Leikurinn hafði verið jafn á upphafsmínútunum, en Þróttarar nýttu fyrsta alvöru færið sem þeir fengu.

Könnun
Nýja útlitiđ betra en ţađ gamla?
Nei
Hlutlaus
Tengdir notendur
US 38.107.x.x
 

Köttarar.net © 2008-2010
Hönnun&Uppsetning: Ólafur Magnússon

Forsíða | Um Vefinn | Veftré | Hafa Samband
Orkað af MemHT Portal